Stuttárbotnar, frístundabyggð í Húsafelli – Tillaga að deiliskipulagi

Stuttárbotnar, frístundabyggð í Húsafelli – Tillaga að deiliskipulagi

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðarinnar í Stuttárbotnum í Húsafelli í Borgarbyggð.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 13. mars 2025 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir frístundabyggðina í Stuttárbotnum í Húsafelli í Borgarbyggð.

Tillagan tekur til 102 ha svæðis og nær yfir núverandi frístundabyggð Stuttárbotna í Húsafelli í Borgarbyggð. Aðkoma að svæðinu er af Hálsasveitarvegi (518). Tillagan samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar mál nr. 493/2025 frá 10. apríl 2025 til og með 26. maí 2025 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 10. apríl, 2025.