Galtarholt 3, hjólhýsabyggð – Tillaga að deiliskipulagi

Galtarholt 3, hjólhýsabyggð – Tillaga að deiliskipulagi

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi Galtarholt 3, hjólhýsabyggð í Borgarbyggð.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. júní 2025 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi hjólhýsabyggðar í Galtarholti 3 í Borgarbyggð.

Tillagan tekur til núverandi hjólhýsabyggðar í landi Galtarholts 3 sem hefur verið á svæðinu í áratugi. Svæðið er skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota (O8) í gildandi Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Aðkoma að svæðinu er af Þjóðvegi 1. Í deiliskipulaginu verði markaður skýr rammi utan um starfsemina í samræmi við gildandi lög og reglugerðir er við koma starfseminni. Deiliskipulagið er unnið með hliðsjón af leiðbeiningum um Brunavarnir á tjald- og hjólhýsasvæðum frá HMS frá árinu 2020. Deiliskipulag þetta samræmist gildandi aðalskipulagi.

·Skipulagstillaga er aðgengileg hér í skipulagsgátt

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 864/2025) frá 26.06.2025 til og með 10.08.2025 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við tillöguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 26. júní, 2025.